Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: María Jónsdóttir
  • Staður: Dalvík
  • Atvinna: Leikskólakennari
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð
  • Um mig: Búsett á Dalvík, á mann og tvö börn sem ég elska öll mjög heitt.

Jól

28. desember 2008 klukkan 20:46

"Jól, komin einu sinni aftur..." eins og segir í textanum. Kominn 28. desember sem þýðir að það er kominn 4rði í jólum. Fyrstu jól Rakelar Báru eru hálfnuð og aðeins 3 dagar til áramóta. Finnst ekki svo langt síðan síðasti gamlársdagur var þegar við tilkynntum fjölskyldum okkar að von væri á litlu kríli hjá okkur í lok sumarsins en það er víst að verða ár síðan. 
Þetta árið ákváðum við að vera með fjölskyldunni minni á Akureyri á aðfangadagskvöld sem var ósköp notalegt. Höfum ekki verið þar síðan við Addi fórum að vera saman svo okkur fannst tilvalið að vera það núna, kom sér vel því Rakel Bára er svo lítil og þarf mikið að hugsa um hana svo lítill tími hefði verið til eldamennsku. En framvegis ætlum við annars að vera heima hjá okkur á aðfangadagskvöld eins og við gerðum í fyrra... það er einhvernveginn notalegast.
Við ákváðum að bregða út af vananum þetta árið og vera ekki með fjölskyldunni minni á gamlárskvöld heldur vera hér á Dalvík og borða með foreldrum Adda og vera þar fram að miðnætti a.m.k, sjá svo til hvert framhaldið verður. Reikna ekki með að ég sé að fara á ball á nýársnótt en aldrei að vita nema Addi skelli sér.
Við hjónaleysin gerðum okkur lítið fyrir á aðfangadagsmorgun og settum upp gullhringa... erum semsagt trúlofuð núna. ÞAð var tilvonandi frúin sem bað bónda síns sem játaðist henni undir eins... enda vorum við saman í að kaupa hringana fyrir nokkrum vikum svo þetta var ekkert surprise eins og hjá mörgum. En við höfum samt ekki ákveðið dagsetninguna endanlega ennþá, en eitt er víst að það verður ekki innan árs... en vonandi innan 5 ára samt.
Í gærkvöldi var haldinn dansleikur hér á Dalvík í Víkurröst með Matta Matt, Magna og Begga nuddara, ásamt smá innskoti af Eyþóri Inga. Við vorum með smá samsæti hér heima fyrir ballið og skelltum okkur svo á ball... Inga systir kom og var hjá englunum okkar meðan við vorum á ballinu, en þau sváfu nú allan tímann svo það var henni ekki ofraun held ég.
Valdís er hér á landinu yfir jólin ásamt eiginmanni sínum... í fyrsta sinn síðan 2001. Höfum ekki hist ennþá en það stendur til í vikunni. Inga vinkona er líka á landinu með sína fjölskyldu og stendur einnig til að reyna að hitta hana, hvort sem það verður heimboð til Dalvíkur eða við förum til Húsavíkur.
Þetta hafa annars bara verið hin notalegustu jól, svolítið flakk búið að vera á okkur samt en það er víst ekki óvanalegt á þessum árstíma, sérstaklega þar sem fólkið mitt býr allt utan Dalvíkur.
Njótið þess svo að vera í faðmi fjölskyldunnar það sem eftir er af jólunum og borða góðan mat... nógur tími til að hugsa um mataræðið og að leggja af eftir jólin... höfum ekki nema 11 og hálfan mánuð til að ná af okkur aukakílóunum fyrir næstu jól;)

Tjahhh....

10. desember 2008 klukkan 21:58
.... ég veit hreinlega ekki hvað ég á að skrifa hér. Jólin eftir 2 vikur og við vorum að ákveða að eyða aðfangadagskvöldi með fjölskyldunni minni á Akureyri, ekki verið með þeim síðan við Addi byrjuðum saman. Ég er ótrúlega ánægð með þessa ákvörðun okkar, og það var m.a.s. Addi sem stakk eiginlega upp á því. Ég var búin að hafa orð á að ég væri alveg til í að vera hjá þeim einhverntíman á aðfangadagskvöld og svo var það ekkert rætt meira... fyrr en á sunnudaginn, þá ákváðum við þetta endanlega. Fínt að þurfa ekki að hugsa um jólamatseldina alveg ein, get þá kannski reynt að gefa Rakel Báru að drekka rétt fyrir matinn og fæ þá kannski smá frið við að borða. Við ætlum svo að vera hjá tengdaforeldrum mínum á gamlárskvöld, borðum með þeim og svona, hvernig sem framhaldið verður. Það verður alltaf pínu meira jólalegt hjá mér, er samt ótrúlega róleg í þessu eitthvað... held að ég vinni best undir pressu svo ég reikna með að lokahöndin verði lögð á þetta korter í jól;) Neinei... segi svona. Ég ákvað í síðustu viku að halda mömmuhóp hjá mér 16. desember til þess að hafa ástæðu til að klára allt fyrir þann dag... og ætla ég mér að gera það... m.a.s setja jólatréð upp held ég og skreyta. Svo er bara spurning hvort jólatréð fær að vera í friði þessi jólin, það verður bara að láta reyna á það. Alexander var mjög rólegur í því í fyrra, tók nokkrar kúlur af en setti þær alltaf á sinn stað aftur, bara svona að skoða þetta. En ég get alveg trúað að hann verði aðeins öflugri núna. A.m.k finnst mér ég vera í því að laga til og gera sama hlutinn aftur og aftur hér heima, kannski þess vegna sem þetta gengur svona hægt hehe... en hann er ótrúlega duglegur við að drasla til, ólaga dúka, setja kertastjakana á aðra staði, skilur föt eftir sig út um allt og mat og drykki... en það er svosem okkar sök líka, eigum ekkert að láta hann komast upp með þetta. Nú eru feðgarnir sofnaðir og búnir að sofa í um klukkutíma en við mæðgur erum á næturvaktinni eins og vanalega. Reyndar sofnaði prinsessan á sæmilegum tíma í gær, var sofnuð rétt fyrir 12 og vaknaði svo einu sinni til að drekka um kl. 4 eins og vanalega. Nú liggur hún á teppinu sínu inni í stofu og dundar sér. Hvað haldiði að Alexander hafi gert áðan (líka mín sök)!!! Hann var að bursta tennurnar inn á baði og ég labbaði aðeins fram í smá stund, hefur nú verið í lagi að skilja hann eftir þar í smá stund hingað til... en þegar ég kom til baka sá ég að hann lagði eitthvað frá sér á hilluna, pínu skömmustulegur. Hann hafði náð í rakvélina mína og reynt að RAKA SIG!!! Ég var alveg miður mín, 3 litlar blóðrendur á efri vörinni hans og hann greyið fór ekki einu sinni að gráta. En það blæddi ótrúlega mikið úr þessu litla sári og hann setti alltaf efri vörina upp í sig til að taka blóðið, og líka af því honum fannst þetta óþægilegt og skammaðist sín eitthvað held ég. ÉG gat náttúrulega ekki reiðst honum þar sem ég hafði skilið rakvélina eftir þarna, í flýtinum á föstudaginn, en ég sagði honum að hann mætti aldrei gera svona aftur, það væri bara pabbi hans sem þyrfti að raka sig. En að sjálfsögðu var greyið bara að reyna að gera eins og pabbi... hann er alveg í því þessa dagana, gerir allt eins og við. Og talar eins og við... nýjasta orðið hans er einmitt "hevviddi" (helvíti) og hefur hann án efa heyrt okkur segja það, þó ég blóti mjög sjaldan en Addi gerir þeim mun meira af því. Svo var ég að skipta á honum um daginn og hann var búinn að kúka, ég sagði "ojjj" og þá sagði hann "hevviddi sætt", þetta hefur pabbi hans sagt þegar hann var að skipta á kúkableiu hjá honum einhverntíman. En nú er best að koma sér fyrir framan TV og horfa á C.S.I Miami... nattí natt:*

Jólin, jólin...

26. nóvember 2008 klukkan 11:00
Jólin nálgast og er það farið að sjást á sumum húsum hér í bæ... svo ekki sé talað um verslanir landsins. Í morgun var foreldraföndur í leikskólanum hjá Alexander og mættum við Addi bæði með honum og Rakel Bára m.a.s. líka. Við gerðum kertastjaka úr saltkeramiki og kartöflukonfekt... voða gaman. 5. desember verður jólaglögg hjá Norðurströnd og bauð Addi minn mér með sér á það. Mamma og pabbi eru svo elskuleg að þau ætla að koma hingað og vera hjá krökkunum... eru hvort sem er að fara að dansa á Dalvík með þjóðdansahópnum daginn eftir. Ég fer svo ein á tvenn litlu jól, hjá Kríló 18. desember og svo ætlum við saumógellurnar að hittast 19. des. Ég er orðin voða spennt fyrir þessu öllu. Er að reyna að komast í gírinn aftur... var komin í gang áður en ég fór suður, þreif gluggana og svona og setti upp jólagardínurnar en svo hefur lítið sem ekkert gerst eftir það. Jólakassarnir eru komnir niður af loftinu og ég er aðeins byrjuð að tína dót upp úr þeim, búin að setja aðventuljósin í gluggana, á bara eftir að stinga í samband en ég bíð með það þangað til á sunnudaginn... en þá er einmitt 1. í aðventu!!! Mig langar svo að fara að baka eitthvað eða gera konfekt en vil ekki gera það fyrr en ég er búin að þrífa aðeins meira og laga til. Svo það þýðir bara eitt... ég verð að drífa mig í tiltektinni svo ég geti byrjað á því skemmtilega.
Nú er Rakel Bára búin að fá fataskáp í herbergið sitt svo nú eru fötin hennar á einum stað, reyndar hanga kjólarnir hennar á öðrum stað en það eru þó bara tveir staðir... ekki fjórir eða fimm og svo mundi maður aldrei hvar hlutirnir voru. Ég er búin að setja hilluna hennar í herbergið líka og litla kommóðu sem hún á, hengja gardínurnar upp svo þetta er að verða pínu kósí. Tölvuborðið er reyndar enn þarna inni en við eigum enn eftir að fá okkur annað, ætluðum að kaupa í IKEA en það var uppselt sem okkur langaði í. Hún sefur að sjálfsögðu enn inni hjá okkur, enda er ég ekki tilbúin að setja hana í sitt herbergi alveg strax, hugsa að ég bíði með það þangað til hún hættir að drekka á nóttunni. Annars er hún ekkert að vakna oft til að drekka, sofnar líka svo seint. Vaknar oftast undir morgun en kemur fyrir að það sé um 4 leytið... ekki fyrr en það allavegana. 
Við mamma og Rakel Bára skelltum okkur í borgina fyrir 1 og hálfri viku og stoppuðum í 4 daga, komum heim á fimmtudaginn síðasta. Ferðalagið gekk mjög vel, stoppuðum í Varmahlíð til að fá okkur að borða og gefa henni að drekka, stoppuðum svo ekkert fyrr en í Borgarnesi, þar drakk hún smá en greinilega ekki alveg nóg því hún varð alveg brjáluð rétt eftir að við keyrðum útúr Borgarnesi svo við urðum að stoppa um stund til að róa hana niður, ég skipti á henni og gaf henni að drekka, en það tók dágóða stund að róa hana niður. Jónatan var með okkur og var nú ekkert farið að lítast á þetta, spurði hvort hann þyrfti að taka flug til Kópavogs, fannst við stoppa heldur lengi og skildi ekkert í þessari dramafrænku sinni. Bara krúttlegur þessi Jónatan:D Á heimleiðinni stoppuðum við bara í Staðarskála og svo ekkert fyrr en á Akureyri, Rakel Bára svaf semsagt allan tímann nema í Staðarskála, voða dugleg ferðakona verð ég að segja.
Við náðum aðeins að versla, ég keypti mér 2 peysur og 2 buxur, keypti smá á krakkana og aðeins jólagjafir... svo missti ég mig pínu í IKEA eins og ævinlega... hvað er þetta eiginlega með mig og IKEA?????
Á morgun var stefnan að fara í heimsókn til Önnu Júlíu frænku og láta hana taka myndir af englunum mínum fyrir jólakortin en Addi var að hringja í mig og segja mér að það væri hræðileg veðurspá fyrir morgundaginn og næstu daga svo ég veit ekki hvað verður... vonandi bara rætist þetta ekkert. Ætlaði líka að fara til Akureyrar á laugardaginn að hitta stelpurnar sem voru með mér í HA, en ég hef ekkert komist að hitta þær síðan í júní... hittumst sko reglulega síðustu helgi hvers mánaðar... svo það átti aldeilis að drífa sig núna. Sjáum til hvað verður.
En ætli sé ekki best að reyna að gera eitthvað svo ég geti byrjað að gera eitthvað skemmtilegt... till next... Maja 

Hvernig er það?

31. október 2008 klukkan 08:49
Ég held svei mér þá að ég sé alveg hætt að nenna að skrifa hér inn... finnst ég aldrei hafa neitt að skrifa um svo ég sleppi því frekar. Þetta endar alltaf sem einhver dagbók hjá mér sem flestum finnst ekkert gaman að lesa. 
Nú eins og allir vita er kreppa á Íslandi... við höfum reyndar komist ágætlega undan þessu enn sem komið er en þetta er bara rétt að byrja. Ef ég hefði vitað... eða grunað... að ástandið yrði svona núna hefðum við í fyrsta lagi aldrei farið út í barneignir á þessum tíma... hvað þá hefði ég ákveðið að njóta mín smá og taka 10 mánaða fæðingarorlofCry Sú ákvörðun var tekin með því tilliti að Addi væri með sína aukavinnu og ætlaði að gera þetta allt einn í stað þess að fá aðstoð sem hann hefur stundum fengið. Þannig ætluðum við að láta hlutina ganga upp þessa 10 mánuði. Því miður er staðan sú núna að Addi fær nánast enga aukavinnu fram að áramótum svo það verður reynt að skrimta þangað til. Nú sit ég semsagt heima hjá mér í fæðingarorlofinu sem ég ætlaði heldur betur að njóta... þrátt fyrir litla peninga... og er með samviskubit. Hugsa stöðugt um að ég verði að fara að komast út á vinnumarkaðinn aftur. En ég er bara ekki tilbúin að fara frá Rakel Báru alveg strax. Ég verð kannski að reyna að fá mér smá vinnu með, svona 30-40% vinnu, því ég er bara í ca 60% orlofi þar sem ég dreifi 6 mánaða greiðslum á 10 mánuði. Nú er bara spurning hvað það ætti að vera. Ekki mikið um atvinnu þessa dagana. En nóg af þessu... maður verður bara þunglyndur í svona hugsanagangi.
Rakel Bára greyið er búin að vera lasin alla vikuna. Fórum reyndar aðeins út úr húsi í gær, leyfði henni að sofa smástund í vagninum úti. Hefði kannski betur sleppt því, því mér finnst hóstinn hafa aukist hjá henni og hún nær oft ekki andanum þegar hún hóstar... hræðilegt þegar það gerist, þá verð ég svo hrædd. En þetta hlýtur að taka enda eins og annað. Fór með hana til læknis á þriðjudaginn og þá var hún hlustuð og ekkert fannst ofan í henni svo ég vona bara að það hafi ekki breyst neitt. Sjálf er ég búin að vera með kvef og finnst núna eins og hálsbólga sé að koma, spurning um að reyna að hleypa henni ekkert inn.
Hildur vinkona mín á afmæli í dag, 29 ára stelpan. Við fjölskyldan óskum henni að sjálfsögðu til hamingju með daginn og hlökkum til að kíkja til hennar seinna í dag. 
Það er víst óhætt að segja að veturinn sé kominn á Dalvík. Held reyndar að það sé byrjuð hláka núna, í þessum töluðu orðum... amk allt blautt og vindur úti, en það þarf heldur betur að hlána ef þessi snjór á allur að fara. Hér er sko greinilega verið að spara snjómokstur því það er búið að vera illfært um sumar göturnar nánast alla vikuna, sennilega samdráttur þar eins og annarsstaðar í landinu, bara mokað á dagvinnutímum... eða eitthvað. En gatan mín er amk orðin fær, var ekki vel fær alla vikuna... og við á framhjóladrifnum fólksbíl... veit ekki alveg hvað við vorum að spá þegar við keyptum hann 2006 en það var líka fyrsta árið mitt á Dalvík, var ekki alveg búin að fatta hvað það er snjóþungt hérna. Næst... þegar kreppunni lýkur og bílalánið lækkar (bjartsýn) fáum við okkur 4WD bíl... þetta gengur náttúrlega ekki svona með 2 lítil börn.
En gott er komið af þessu rausi... Majan kveður 

Veit einhver...

07. október 2008 klukkan 12:46
... hvar maður getur fundið merkingu nafna... þ.e. hvað nöfn þýða?? Fann þetta einhverntímann og setti inná síðuna hans Alexanders hvað hans nafn þýðir en svo finn ég ekkert núna.Óákveðinn

2 ára

03. október 2008 klukkan 13:32
Hann Alexander minn er orðinn tveggja ára... ég á bágt með að trúa þessu en svona er þetta nú samt. Hann er orðinn svo stór og duglegur strákur og ég er svo ótrúlega stolt af honum... reyndar er ég bara stolt af okkur Adda fyrir að eiga svona yndislegan og flottan strák. Elsku Alexander Már minn, til hamingju með afmælið þitt. Hlakka til að ná í þig á eftir:D

Skírn

28. september 2008 klukkan 16:11
Í gær, laugardaginn 27. september, létum við skíra dóttur okkar. Hún hlaut nafnið Rakel Bára. Er Báru-nafnið í höfuðið á Báru ömmu hennar (mömmu Adda) en hún heitir einmitt Bára Arthursdóttir. Rakelar-nafnið er bara út í loftið eins og sagt er, fannst það bara fara vel með hinu nafninu. Gekk dagurinn bara vel fyrir sig, fyrir utan það að Addi veiktist kvöldið áður og var eiginlega bara mjög lasinn í gær, en lét sig þó hafa það að mæta í kirkjuna og vera í veislunni. Þetta gekk samt bara vel, fengum mikla og góða aðstoð frá okkar fólki sem er ómetanlegt á svona stundum... ekki alltaf auðvelt að standa í svona brasi með 2 lítil börn. Alltaf er maður samt jafn feginn þegar svona dagar eru liðnir, samt vildi ég halda veislu og finnst gaman að undirbúa veislur og svona en frágangurinn er ekki skemmtilegur, hvar á að koma öllum afgöngum fyrir og þannig. 
Alexander hélt upp á afmælið sitt um leið, fannst algjör óþarfi að halda 2 veislur þar sem við myndum bjóða nánast sama fólkinu í báðar, með viku millibili. Ég hef því ákveðið að bjóða kannski örfáum af deildinni hans Alexanders að koma á föstudaginn, sem er afmælisdagurinn hans, í smá heimsókn og leika. Kannski einskorða ég mig bara við hópinn hans í leikskólanum eða helstu leikfélaga, á eftir að skoða þetta aðeins betur. Hann talar mjög mikið um 3 stráka í leikskólanum svo ég reikna með að bjóða þeim allavegana. Þá ætla ég samt bara að hafa litla veislu, kannski bara eina köku og snakk eða eitthvað.
Rakel Bára dafnar vel... orðin bara nokkuð góð í maganum og farin að kúka nánast daglega, og ef ekki daglega þá allavegana annan hvern dag og helst 2-3 þá daga. Hún sefur enn mikið á daginn en er aftur hress á kvöldin í staðinn, algjör nátthrafn þarna á ferð því hún fer helst ekki að sofa fyrr en um 2. Sofnaði reyndar um hálf 10 í gærkvöldi, enda fórum við öll snemma inn eftir annasaman dag, en vaknaði aftur um klukkutíma seinna svo ég fór með hana fram í stofu þar sem við sofnuðum saman í stólnum og sáfum þar til 1, þá skrölti ég með hana inn og sváfum við ágætlega eftir það. Hún vaknar samt oftast um 4-5 og fær þá smá að drekka og svo sefur hún alveg til morguns.
Við ætlum svo að reyna að losa tölvuherbergið á næstu mánuðum... þurfum þá að selja bæði tölvuborðið og svefnsófann og kaupa okkur nýtt tölvuborð sem við setjum fram á holið, en þetta sem við eigum passar ekki vel þar. Rakel Bára fær svo þetta herbergi fyrir sig þegar hún fer að sofa ein, reyndar fer hún örugglega ekki að sofa þar alveg strax en það er gott að fá herbergið handa henni undir allt dótið hennar. Fötin hennar eru hér og þar um húsið og svo er hún nú þegar búin að fá smá af dóti og fær sjálfsagt meira í vetur svo það vantar stað til að hafa það á.
Segi þetta gott í bili, var að setja inn myndir á barnalandssíðurnar þeirra, endilega kíkið á það.
Ciao M.

1 mánuður...

21. september 2008 klukkan 23:02
... er liðinn síðan litla prinsessan okkar fæddist. Ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt... ég er ekki alveg að fatta að hún sé orðin svona gömul. Hún er sko heldur betur búin að stækka daman... var þarna rúm 4 kíló þegar hún fæddist, orðin 4 og hálft þegar hún var 2 vikna og svo var hún orðin 5 kíló 4 vikna... svo með þessu áframhaldi verður hún orðin 9 kíló um jólin hehehe:D Var að skoða dagbókina hans Alexanders í gær og sá þá að hann hafði bara þyngst um rúm 300 grömm fyrsta mánuðinn... enda fékk hann ekki ábót eins snemma og hún fékk... plús það að hann sofnaði nánast alltaf á brjóstinu og drakk sig því sennilega aldrei saddan. Hann dafnaði nú samt alltaf eðlilega og var og er enn alltaf rétt yfir eða á línunni á kúrfunni. 
Við ætlum að skíra dömuna á næsta laugardag, 27. september, og halda upp á afmæli Alexanders um leið... hvort sem er sama fólkið sem við myndum bjóða svo það er eins gott að halda bara eina veislu... fyrst þetta hittir nú á þennan tíma.
Ég var svo að hlaða inn myndum úr myndavélinni í tölvuna og ætla að reyna að setja eitthvað inn á síður krakkanna á eftir.
Bið annars bara að heilsa í bili... veit ég er mjög ódugleg að blogga en það er bara nóg annað að gera núna... og verður sjálfsagt enn minni tími framvegis þar sem Addi fer að vinna á morgun svo þá hef ég enn minni tíma til að sinna tölvunni.
Hilsen Maja

Ný færsla

31. ágúst 2008 klukkan 21:33
Daman orðin 10 daga gömul og ég eiginlega trúi því ekki. Finnst svo stutt síðan ég var með kúluna mína framan á mér og nú held ég á innihaldi hennar í fanginu daglega og dáist að fegurðinniKoss Hún er voða dugleg að drekka, eiginlega of dugleg fyrir mömmuna því ég næ engan veginn að þjóna eftirspurn... framleiði því miður ekki nóga mjólk handa greyinu... frekar en ég gerði handa Alexander... svo við höfum verið að gefa henni ábót daglega... sérstaklega á kvöldin því þá er minnsta framleiðslan hjá mér. Ég á því miður líka við það vandamál að stríða að annað brjóstið mitt er mjög sárt, þ.e.a.s geirvartan. Ég er búin að vera að bera á mig brjóstakremið og Aloe Vera gelið sem á að lækna allt en er samt enn með blæðandi sár og er dauðhrædd um að ég sé komin með einhverja ógeðslega sýkingu líka. Ætla að tala um þetta við Lilju á morgun þegar hún kemur til mín. Spurning hvort ég verð bara að hætta með hana á hægra og vera bara með hana á einum bobba... sé til hvernig þetta fer. Samt bara leiðinlegt því brjóstagjöf á að vera eitthvað yndislegt en ég bara upplifi hana ekki þannig þegar ég kvíði fyrir að leggja hana á brjóstið og stífna öll upp og fæ tár í augun... ekki beint yndislegast í heimi.

Annars gengur allt mjög vel hjá okkur. Mýsla litla sefur mikið, bæði á nóttunni og daginn. Held við höfum átt 2 erfiðar nætur síðan hún fæddist sem er bara ágætt. Alexander svaf voða lítið á daginn þegar hann var svona lítill en alltaf vel á nóttunni... ég er því að kynnast nýju með þennan dagsvefn hennar... enda njótum við þess bara að leggja okkur á daginn með henni ef við erum þreytt, meðan Alexander er í leikskólanum. 

Ég skellti mér í Bárðardalinn í dag með börnin... tók líka mömmu með mér svo ég væri ekki ein alla leiðina með þau. Maya, Cory og Jakob eru á Íslandi núna og Begga kom norður, þau héldu semsagt sameiginlega upp á afmæli strákanna sinna... voða gaman að hitta alla og fá gott að borða. Og alveg ótrúlega dæmigert fyrir minn son... hann er einhvernveginn hálf feiminn... ekki mikið fyrir að reyna að kynnast krökkum í margmenni, en þegar flestir voru farnir og ég farin að hugsa til heimferðar fóru hann og Jakob loksins að "mingla" eitthvað. En þau ætla nú að koma í heimsókn til okkar fljótlega og þá ná þeir vonandi að leika sér meira saman.

Kveð að sinni... hin hamingjusama en þreytta móðirGlottandi

A child is born!

23. ágúst 2008 klukkan 16:49
Fimmtudaginn 21.08.08 fæddist okkur Adda yndisleg dama. Hún vó 4090 gr. eða um 16 merkur og var 53 cm... semsagt bara stór og myndarleg stelpa. Við fjölskyldan erum hin hamingjusamasta... Alexander reyndar enn að átta sig á þessum nýja fjölskyldumeðlim en það kemur með tímanum. Við erum semsagt komin heim og ætlum að njóta næsta mánaðar saman í fæðingarorlofi. Ætla að reyna að setja inn einhverjar myndir í kvöld á barnalandssíðuna.

Þetta er nú það helsta í fréttum, ekki mikill tími til bloggs þessa stundina en ég kannski lauma inn einu og einu bloggi við tækifæri.

Kveð að sinni... tveggja barna móðirin.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan